Meiðsli Gísla ekki alvarleg

Meiðsli Gísla reyndust minni en haldið var í fyrstu.
Ljósmynd/lechpoznan.pl

Meiðsli Gísla Gottskálks Þórðarsonar reyndust minni en haldið var í fyrstu, en hann fór meiddur af velli í bikarleik Lech Poznan gegn Piast Gliwice í vikunni og óttast var um alvarleg hnémeiðsli.

Gísli meiddist á hné þegar hann reyndi að stöðva fyrirgjöf og þurfti að yfirgefa leikvöllinn á sjúkrabörum. Í fyrstu var óttast að hann hafi slitið liðbönd, en niðurstöður segulómunar sýna aðeins tognun á liðbandi. Að sögn læknateymis Lech Poznan er gert ráð fyrir að hann snúi til æfinga í janúar.

Meiðslin koma þó í veg fyrir að Gísli leiki næstu þrjá leiki liðsins, þar á meðal gegn Cracovia um helgina og báða leiki liðsins í Sambandsdeildinni á næstu vikum.

Gísli, sem er 21 árs, hefur spilað 19 leiki fyrir Lech Poznan á tímabilinu og skorað eitt mark.

Fyrri frétt

Sara skoraði í sigri – Myndband

Næsta frétt

Guðrún skoraði gegn toppliðinu