Kristall er eftirsóttur

Kristall Máni er eft­ir­sótt­ur af liðum víðsveg­ar um Evr­ópu.
Ljósmynd/Sønderjyske

Frammistaða Kristals Mána Ingasonar með Sønderjyske á yfirstandandi tímabili hefur vakið athygli víða um Evrópu. Danski blaðamaðurinn Farzam Abolhosseini greinir frá því að lið í Belgíu, Hollandi og þýsku B-deildinni fylgist grannt með sóknarmanninum. Fótbolti.net greindi fyrst frá.

Kristall hefur leikið stórt hlutverk hjá Sønderjyske og skilað sjö mörkum og þremur stoðsendingum í sextán leikjum í öllum keppnum í vetur.

Samningur hans gildir í eitt og hálft ár til viðbótar og er verðmiðinn samkvæmt dönskum miðlum metinn á um 7,5 milljónir danskra króna sem jafngildir um 150 milljónir íslenskra króna.

Kristall, sem er 23 ára, lék áður með Fjölni, FC Kaupmannahöfn, Víkingi og Rosenborg áður en hann gekk til liðs við Sønderjyske árið 2023.

Fyrri frétt

Kristall Máni lagði upp

Næsta frétt

Atli á förum frá Zulte Waregem