Atli á förum frá Zulte Waregem

Atli Barkarson er á förum frá belgíska liðinu Zulte Waregem.
Ljósmynd/Zulte Waregem

Orri Rafn Sigurðarson greinir frá því í dag að Atli Barkarson, vinstri bakvörður Zulte Waregem, sé á förum frá liðinu þegar félagaskiptaglugginn opnast í janúar.

Nokkur lið hafa sýnt honum áhuga og þegar hefur hann hafnað tilboði frá liði í Hvíta-Rússlandi. Áhugi er sagður koma úr efstu deildum Portúgals, Austurríkis og Póllands.

Atli hefur ekki fengið tækifæri með aðalliði Zulte Waregem á yfirstandandi tímabili og leikið þess í stað tíu leiki með varaliðinu.

Atli, sem er 24 ára, gekk til liðs við Zulte Waregem þarsíðasta sumar frá Sønderjyske og lék tuttugu deildarleiki þegar liðið tryggði sér sæti í belgísku úrvalsdeildinni síðastliðið vor.

Fyrri frétt

Kristall er eftirsóttur

Næsta frétt

Mikael Egill lagði upp sigurmark Genoa – Myndband