Mikael Egill lagði upp sigurmark Genoa – Myndband

Mikael Egill lagði upp sigurmark Genoa með glæsilegri fyrirgjöf.
Ljósmynd/Genoa

Mikael Egill Ellertsson átti stóran þátt í 2:1 sigri Genoa á Hellas Verona í ítölsku A-deildinni í dag, þegar hann lagði upp sigurmark leiksins með glæsilegri fyrirgjöf.

Hellas Verona komst yfir í fyrri hálfleik, en Genoa jafnaði metin skömmu fyrir leikhlé. Þegar um hálftími var eftir af leiknum átti Mikael Egill nákvæma fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem Morten Thorsby skallaði boltann í netið og tryggði Genoa mikilvæg þrjú stig.

Mikael var síðan tekinn af velli á 85. mínútu, en stoðsendingu hans má sjá hér að neðan.

Sigurinn lyftir Genoa í 15. sæti deildarinnar með 11 stig eftir 13 umferðir. Liðið er nú taplaust í fjórum síðustu leikjum sínum eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

Í B-deildinni lék Bjarki Steinn Bjarkason allan leikinn fyrir Venezia í 3:0 sigri á Mantova. Venezia er í 5. sæti deildarinnar með 25 stig eftir 14 umferðir.

Fyrri frétt

Atli á förum frá Zulte Waregem

Næsta frétt

Andri skoraði í svekkjandi jafntefli