Andri skoraði í svekkjandi jafntefli

Andri Lucas er búinn að skora fimm mörk í síðustu sjö leikjum sínum.
Ljósmynd/Blackburn

Andri Lucas Guðjohnsen kom Blackburn Rovers yfir snemma leiks þegar liðið mætti Wrexham á útivelli í ensku B-deildinni í dag. Markið kom á 13. mínútu og virtist lengi vel ætla að tryggja gestunum stigin þrjú.

Góð fyrirgjöf kom þá inn í teig frá hægri og Andri Lucas skallaði boltann laglega í netið framhjá markverði Wrexham. Andri lék fyrstu 70 mínútur leiksins og var ógnandi á meðan hann var inni á vellinum.

Blackburn virtist hafa sigurinn í höndunum þegar Wrexham náði að jafna metin á fimmtu mínútu uppbótartímans og lauk leiknum því með 1:1-jafntefli.

Andri Lucas hefur nú skorað fimm mörk í síðustu sjö leikjum sínum og verið á meðal áberandi leikmanna liðsins undanfarnar vikur. Blackburn hefur safnað 20 stigum í 17 leikjum og er í 18. sæti deildarinnar.

Stefán Teitur Þórðarson kom inn af bekknum á 82. mínútu hjá Preston sem vann 3:2-útisigur á botnliðinu Sheffield Wednesday. Preston er í 5. sæti með 30 stig.

Benoný Breki Andrésson var tekinn af velli í hálfleik þegar lið hans Stockport gerði 1:1 jafntefli við Barnsley í ensku C-deildinni. Stockport er í 5. sæti með 29 stig.

Þá kom Tómas Bent Magnússon inn á sem varamaður á 68. mínútu hjá Hearts sem gerði markalaust jafntefli við Motherwell í skosku úrvalsdeildinni. Eftir 14 umferðir er Hearts enn á toppi deildarinnar, en nú sex stigum á undan Celtic.

Fyrri frétt

Mikael Egill lagði upp sigurmark Genoa – Myndband

Næsta frétt

Óeirðir í Norrköping: Leikurinn stöðvaður ítrekað