Óeirðir í Norrköping: Leikurinn stöðvaður ítrekað

Óeirðir settu mikinn svip á umspilsleik hjá Íslendingaliðinu Norrköping í Svíþjóð.
Ljósmynd/NTB

Óeirðir settu mikinn svip á seinni umspilsleik Norrköping og Örgryte í dag, þar sem leikurinn var stöðvaður ítrekað eftir að blysum og flugeldum var kastað inn á heimavöll Norrköping. Eldur kviknaði í gervigrasinu á nokkrum stöðum og leikmenn yfirgáfu völlinn af öryggisástæðum.

Örgryte hafði tryggt sér sterka stöðu með 3:0-sigri í fyrri leiknum og því var mikið undir hjá heimaliði Norrköping, sem þurfti að vinna upp þriggja marka mun til að halda sæti sínu í sænsku úrvalsdeildinni.

Arnór Ingvi Traustason og Ísak Andri Sigurgeirsson voru í byrjunarliði Norrköping og Jónatan Guðni Arnarsson kom inn á í seinni hálfleik. Norrköping sótti af krafti, en sífelldar truflanir úr stúkunni tóku í raun yfir gang leiksins.

Leikurinn var fyrst stöðvaður þegar stuðningsmenn Örgryte rifu niður girðingu í stúkunni og síðar þegar mikil sprenging heyrðist á vellinum. Seinni hálfleikur tafðist einnig vegna bráðatilfellis á áhorfendapöllum áður en tókst að halda leiknum áfram.

Undir lokin blossuðu óeirðirnar upp á ný þegar fleiri blysum og flugeldum var kastað inn á völlinn, sem leiddi til þess að leikmenn voru aftur sendir af leikvelli.

Í hátalarakerfi vallarins var tilkynnt að tæma þyrfti heimastúkuna til að hægt væri að ljúka leiknum og samkvæmt HBO Max stóð til að hefja leikinn á ný í kvöld.

Uppfært: Leikurinn var kláraður og er það nú staðfest að Norrköping er fallið niður í sænsku B-deildina.

Fyrri frétt

Andri skoraði í svekkjandi jafntefli

Næsta frétt

Óttar Magnús á skotskónum – Myndband