Óttar Magnús Karlsson skoraði eina mark Renate í 1:2 tapi gegn ArzignanoChiampo í ítölsku C-deildinni í dag. Leikurinn fór fram á heimavelli Renate og kom mark Óttars á 52. mínútu þegar hann jafnaði metin með skalla af stuttu færi.
Renate situr nú í 9. sæti af 20 liðum í sínum riðli eftir 16 umferðir og er þar með í umspilssæti um að komast upp um deild.
Óttar Magnús hefur nú skorað tvö mörk í ellefu leikjum á tímabilinu. Hann gekk til liðs við Renate fyrir þetta tímabil.
Jón Dagur Þorsteinsson fékk ekki tækifæri og sat allan tímann á varamannabekknum hjá Herthu Berlín í 1:0 sigri liðsins á Holstein Kiel í þýsku B-deildinni. Þá var Brynjar Ingi Bjarnason frá vegna meiðsla þegar lið hans Greuther Fürth tapaði fyrir Bochum, 3:0.
Lúkas Blöndal Petersson stóð í markinu hjá varaliði Hoffenheim í 3:2 tapi gegn Ingolstadt í þýsku C-deildinni.