Kristall Máni Ingason átti góðan leik með Sønderjyske þegar liðið gerði 2:2-jafntefli við Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Hann átti stoðsendinguna að öðru marki liðsins snemma í seinni hálfleik, en Viborg náði að svara í kjölfarið og jafnaði metin undir lok leiks.
Sønderjyske situr áfram í 5. sæti deildarinnar með 26 stig, tveimur stigum á eftir FC Kaupmannahöfn sem er í fjórða sæti.
Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn í vörn Sønderjyske og Kristall Máni var í byrjunarliði, þar til hann fór af velli um miðjan seinni hálfleik.
Í B-deildinni lék Ísak Snær Þorvaldsson allan leikinn með Lyngby þegar liðið tapaði 1:0 fyrir Hillerød á útivelli í toppslag. Liðin eru jöfn á toppi deildarinnar með 32 stig hvort, en Lyngby heldur efsta sætinu á markatölu.
Helgi Fróði Ingason var í byrjunarliði Helmond Sport þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Cambuur í hollensku B-deildinni. Hann lék í 73 mínútur í leiknum en þetta var hans annar byrjunarliðsleikur í röð. Helmond Sport er í 11. sæti eftir 18 umferðir.
Kristófer Jónsson lék allan leikinn fyrir Triestina í 2:1-sigri liðsins á Pro Patria í ítölsku C-deildinni. Markús Páll Ellertsson sat allan tímann á bekknum hjá Triestina. Liðið er nú með fimm stig í mínus, en alls 23 stig voru dregin af liðinu í upphafi leiktíðar vegna mikillia fjárhagsörðuleika.
Þá kom Oliver Stefánsson inn á sem varamaður á 63. mínútu þegar lið hans GKS Tychy steinlá gegn Miedź Legnica, 6:1, pólsku B-deildinni. GKS Tychy hefur nú tapað fimm deildarleikjum í röð og í næstneðsta sæti deildarinnar þegar tímabilið er rúmlega hálfnað.