Gísli Gottskálk Þórðarson varð fyrir slæmum meiðslum í bikarleik Lech Poznan gegn Piast Gliwice í gærkvöld, þar sem Poznan tryggði sér sæti í átta liða úrslitum með 2:0 sigri.
Gísli kom inn af bekknum á 23. mínútu en lék ekki nema fram á miðjan seinni hálfleik. Hann meiddist illa þegar hann reyndi að stöðva fyrirgjöf við hliðarlínuna og þurfti að yfirgefa leikvöllinn á sjúkrabörum.
Pólski miðillinn Gol24 greinir frá því að meiðslin séu talin alvarleg og að Gísli gæti orðið frá keppni í langan tíma.
Af virðingu við Gísla eru hvorki birtar myndir né myndbönd af meiðslunum né þegar hann var borinn af velli.