Sjötta mark Andra – Myndband

Andri Lucas heldur áfram að raða inn mörkum á Englandi.
Ljósmynd/Blackburn

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði eina mark Blackburn Rovers í 1:1 jafntefli liðsins gegn Ipswich Town í ensku B-deildinni í gærkvöld.

Markið kom á 76. mínútu þegar hornspyrna barst yfir á fjærstöng og Andri Lucas skallaði boltann örugglega í netið. Með markinu hélt hann áfram góðu gengi sínu en hann hefur nú skorað sex mörk í síðustu átta leikjum og verið áberandi í sóknarleik liðsins.

Vonir Blackburn um sigur dugðu þó skammt því gestirnir jöfnuðu í blálokin og varð niðurstaðan jafntefli. Blackburn er í 18. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 18 umferðir.

Fyrri frétt

Ungstirnið fór aftur á kost­um

Næsta frétt

Gísli var bor­inn af velli