Viktor Bjarki Daðason átti stórleik þegar FC Kaupmannahöfn lagði Esbjerg að velli, 4:2, í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum dönsku bikarkeppninnar í kvöld.
Viktor Bjarki kom FC Kaupmannahöfn yfir snemma leiks með marki af stuttu færi og átti síðan stoðsendingu í þriðja marki liðsins síðar í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik bætti hann við öðru marki sínu, einnig úr teignum, og var þar með kominn með tvö mörk og eina stoðsendingu í leiknum.
Hægt er að sjá svipmyndir úr leiknum á vef FC Kaupmannahafnar.
Framherjinn ungi hefur farið glæsilega af stað á sínu fyrsta tímabili með aðalliði FC Kaupmannahafnar og er kominn með fimm mörk og tvær stoðsendingar í ellefu leikjum.
Seinni leikur liðanna fer fram á Parken í Kaupmannahöfn laugardaginn 13. desember.