Leikur Ajax og Groningen í hollensku úrvalsdeildinni var stöðvaður í kvöld eftir aðeins fimm mínútur vegna mikillar flugeldanotkunar í stúku stuðningsmanna Ajax. Í liði Groningen var Brynjólfur Darri Willumsson í byrjunarliðinu, en leikurinn stöðvaðist þegar flugeldar og blys dundu niður og öryggi leikmanna og áhorfenda var ekki lengur tryggt.
Flugeldasýningin var sögð hafa verið hugsuð sem kveðja til látins stuðningsmanns Ajax, en fór fljótt úr böndunum. Ajax fordæmdi framgönguna og baðst afsökunar á atvikinu og sagði að þrátt fyrir leitarhunda og ítarlega öryggisleit hafi umfang flugeldanna komið öllum í opna skjöldu.
Eftir rúmlega fjörutíu mínútna töf var reynt að hefja leikinn að nýju, en innan örfárra sekúndna komu flugeldar aftur inn á völlinn og var þá ljóst að ekki yrði haldið áfram. Hann hefur verið settur á að nýju á þriðjudag, án áhorfenda.