Jóhannes Kristinn á leið til Kolding

Jóhannes Kristinn er á leið til danska liðsins Kolding IF.
Jóhannes Kristinn var hjá Norrköping árin 2021-23.Ljósmynd/Norrköping

Jóhannes Kristinn Bjarnason, leikmaður KR, er á leið til danska liðsins Kolding IF, en það er sparkspekingurinn Hjörvar Hafliðason sem greinir frá þessu í kvöld.

Hjörvar segir að Jóhannes Kristinn hafi kvatt liðsfélaga sína í KR í morgun. Jóhannes Kristinn hefur skorað sex mörk í 14 deildarleikjum og lagt upp önnur þrjú fyrir KR í Bestu deildinni á yfirstandandi leiktíð.

Jóhannes Kristinn var á dögunum orðaður við skoska úrvalsdeildarliðið Glasgow Rangers og belgíska úrvalsdeildarliðið Genk.

Kolding IF leikur í dönsku B-deildinni og er í 5. sæti deildarinnar eftir aðeins tvær umferðir. Ari Leifsson leikur með liðinu.

Fyrri frétt

Arnór horfir fram á veginn – „Það er aftur gaman að spila fótbolta“

Næsta frétt

Tómas Bent gengur til liðs við Hearts í Skotlandi