Arnór Sigurðsson, leikmaður sænska liðsins Malmö, viðurkennir að frammistaða hans hafi ekki verið upp á sitt besta frá því hann gekk til liðsins í febrúar á þessu ári.
Í útsendingu fyrir leik Malmö og Brommapojkarna í gær gagnrýndi sænski sérfræðingurinn Nordin Gerzić frammistöðu Arnórs og sagði hann ekki hafa reynst nægilega góð viðbót fyrir Malmö hingað til.
Arnór tók gagnrýninni með yfirvegun og viðurkenndi að hún ætti við rök að styðjast.
„Hann hefur rétt fyrir sér. Þegar nýr leikmaður er meiddur og nær ekki að finna taktinn, þá er það einfaldlega staðan,“ sagði Arnór við Sportbladet. „Fólk hefur miklar væntingar til mín, en mínar eigin væntingar eru enn meiri. Að geta ekki staðið sig eða fundið að maður er ekki á sínum stað er erfitt, en ég hef fengið mikinn stuðning frá fólkinu í kringum mig.“
Arnór hefur glímt við meiðsli undanfarið en segir nú að hann sé loksins laus við verki í fyrsta skipti í langan tíma. „Ég finn að ég hreyfi mig eins og ég á að gera. Það er aftur gaman að spila fótbolta,“ sagði hann.
Henrik Rydström, þjálfari Malmö, hrósaði síðan Arnóri fyrir vinnusemi og segist sannfærður um að hann muni blómstra á ný.