Tómas Bent gengur til liðs við Hearts í Skotlandi

Tómas Bent er á leið til skoska úrvalsdeildarliðsins Hearts.
Ljósmynd/Valur

Tómas Bent Magnússon, leikmaður Vals, er á leið til skoska úrvalsdeildarliðsins Hearts. Samkomulag hefur náðst milli félaganna og gert er ráð fyrir að Tómas fari til Skotlands á næstu dögum til að gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir langtímasamning. Edinburgh News og Fótbolti.net greina bæði frá.

Tómas Bent var ekki með í liði Vals í sigri á FH í gær, þar sem ljóst er að hann hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið.

„Þetta er nánast klárt. Við erum að ganga frá lokaatriðum í dag,“ sagði Björn Steinar Jónsson, formaður knatttspyrnudeildar Vals, í samtali við Edinburgh News. „Tómas fer líklega til Skotlands á næstu dögum.“

Hearts sýndi formlegan áhuga á Tómasi í síðustu viku og er vonast til að félagaskiptin gangi fljótt fyrir sig. Ef allt gengur að óskum gæti hann verið löglegur í fyrstu umferð skosku úrvalsdeildarinnar gegn Aberdeen í næstu viku.

Tómas Bent, sem 22 ára gamall Eyjamaður, hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu á miðju Vals og í Evrópuleikjum sumarsins. Hann var lykilmaður í liði ÍBV á síðasta tímabili þegar liðið vann Lengjudeildina og hélt áfram að sanna sig eftir komu sína til Vals.

Tómas Bent verður ekki fyrsti Íslendingurinn til að leika fyrir Hearts en Eggert Gunnþór Jónsson lék með liðinu á árunum 2005-2012.

Fyrri frétt

Jóhannes Kristinn á leið til Kolding

Næsta frétt

Alexander Rafn valdi Nordsjælland