Danska úrvalsdeildarliðið Nordsjælland hefur tryggt sér 15 ára sóknarmanninn Alexander Rafn Pálmason frá KR.
Samkvæmt danska miðlinum Bold hafa félögin náð samkomulagi um félagaskipti sem munu ganga endanlega í gegn þegar Alexander Rafn verður 16 ára í apríl á næsta ári.
Alexander Rafn heldur þó til Danmerkur í ágúst til að ganga frá samningi og skrifa undir þriggja ára samning, sem gildir til sumarsins 2028.
Samkvæmt heimildum bæði Bold og Fótbolti.net er um að ræða metfé fyrir KR, líklega hæsta söluverð félagsins til þessa.
Alexander Rafn fór á reynslu til FC Kaupmannahafnar og Real Sociedad en ákvað að velja Nordsjælland að lokum.
Nordsjælland hefur byggt upp eitt sterkasta unglingastarf Norðurlanda og er meðal fremstu félaga í Evrópu þegar kemur að því að gefa ungum leikmönnum tækifæri.
Alexander Rafn er sonur fyrrum atvinnumannsins Pálma Rafns Pálmasonar.