Ungir og efnilegir leikmenn á skotskónum

Fjórir ungir og efnilegir leikmenn voru á skotskónum á síðustu dögum.
Ljósmynd/@totalfl

Gunnar Orri Olsen og Viktor Bjarki Daðason voru báðir á meðal markaskorara þegar U19-lið FC Kaupmannahafnar vann Qarabag 5:0 í Unglingadeild UEFA í gær. Gunnar Orri skoraði með skalla snemma leiks og stuttu síðar bætti Viktor Bjarki við þriðja marki liðsins.

Daníel Ingi Jóhannesson skoraði í fyrradag fyrir varalið Nordsjælland í 3:0-sigri á U21-liði West Bromwich Albion í alþjóðlegu unglingamóti á Englandi.

Í Árósum skoraði Tómas Óli Kristjánsson tvívegis fyrir U19-lið AGF gegn Brøndby um síðustu helgi. Hann kom liðinu yfir undir lok fyrri hálfleiks og minnkaði síðan muninn í seinni hálfleik, en Brøndby hafði að lokum betur, 4:2.

Fyrri frétt

Mikael í liði um­ferðar­inn­ar

Næsta frétt

Hákon fljót­ur að skora í Róm – Sjáðu markið