Mikael í liði um­ferðar­inn­ar

Mikael Neville var valinn í lið umferðarinnar í Svíþjóð eftir frábæra frammistöðu.
Ljósmynd/Djurgården

Mikael Neville Anderson var valinn í lið umferðarinnar hjá sænska fjölmiðlinum TuttoSvenskan eftir að hafa farið á kostum í 8:2-sigri Djurgården á Sirius í sænsku úrvalsdeildinni síðasta mánudag.

Mikael skoraði tvö mörk í leiknum, þar á meðal sitt fyrsta í deildinni, og lagði einnig upp mark fyrir August Priske sem fullkomnaði þrennu sínu í leiknum.

Djurgården hefur verið á miklu skriði að undanförnu, er taplaust frá því um miðjan júlí og situr í 7. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 41 stig eftir 25 umferðir.

Fyrri frétt

Mikael og félagar enn án sigurs

Næsta frétt

Ungir og efnilegir leikmenn á skotskónum