Mikael og félagar enn án sigurs

Mikael Egill og samherjar hans í Genoa eru enn án sigurs.
Ljósmynd/genovatoday.it

Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn fyrir Genoa í ítölsku A-deildinni í kvöld þegar liðið tók á móti Lazio á heimavelli. Þrátt fyrir ágæta baráttu reyndist gæðamunurinn á liðunum skýr og gestirnir unnu 3:0 sigur.

Það tók Lazio aðeins fjórar mínútur að brjóta ísinn með marki Matteo Cancellieri. Á 30. mínútu bætti Valentin Castellanos við öðru marki áður en Mattia Zaccagni gulltryggði sigurinn með þriðja markinu um miðjan seinni hálfleik.

Genoa hefur nú aðeins safnað tveimur stigum eftir fimm umferðir og situr í fallsæti ásamt Pisa og Lecce.

Fyrri frétt

Stefán skoraði tólfta markið

Næsta frétt

Mikael í liði um­ferðar­inn­ar