„Stórleikur Íslendingsins“

Gísli fær mikið lof fyrir frammistöðu sína í Póllandi.
Ljósmynd/lechpoznan.pl

Gísli Gottskálk Þórðarson átti frábæra innkomu þegar lið hans Lech Poznań vann 4:3-útisigur gegn Lechia Gdańsk í pólsku úrvalsdeildinni í fyrradag.

Lech Poznan lenti 0:2 undir í fyrri hálfleik, en Gísli kom inn á rétt fyrir leikhlé og breytti gangi leiksins. Hann skoraði sjálfur snemma í seinni hálfleik, lagði upp mark og kom að undirbúningi í þriðja marki liðsins.

Gísli var í dag lofaður í pólska dagblaðinu Przegląd Sportowy undir fyrirsögninni „Stórleikur Íslendingsins“ fyrir glæsilega frammistöðu. Gísli var jafnframt valinn í lið umferðarinnar af sjónvarpsstöðinni Canal+.

Sigurinn var sérlega merkilegur fyrir Lech Poznań, þar sem þetta var í fyrsta sinn í 16 ár sem liðið náði að snúa taflinu við eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.

Hér að neðan má sjá mark Gísla og stoðsendingu hans í leiknum.

Fyrri frétt

Alexander Rafn valdi Nordsjælland

Næsta frétt

Vikuuppgjör: Þó nokkrir á skotskónum