Guðlaugur Victor Pálsson gæti verið á förum frá Plymouth í Englandi áður en félagaskiptaglugginn lokar. Samkvæmt danska miðlinum Bold hefur Horsens mikinn áhuga á landsliðsmanninum. Fotbolti.net sagði fyrst frá.
Horsens situr á toppi dönsku B-deildarinnar með 14 stig eftir sex umferðir og hefur aðeins fengið á sig eitt mark á tímabilinu. Danski miðillinn segir þó að Guðlaugur Victor hafi fleiri möguleika úr að velja og því alls ekki öruggt að hann endi hjá Horsens.
Guðlaugur Victor, sem er 34 ára, þekkir vel til í Danmörku eftir að hafa leikið með bæði AGF og Esbjerg á sínum atvinnumannaferli. Hann samdi við Plymouth í fyrra og hefur verið í byrjunarliðinu í flestum leikjum liðsins á tímabilinu í ensku C-deildinni. Nýlega var hann einnig orðaður við félag í efstu deild Írans, eins og greint var frá í síðasta mánuði.