Albert Guðmundsson lét að sér kveða þegar lið hans Fiorentina tryggði sér 3:0 sigur á Zhytomyr í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í Sambandsdeildinni í kvöld.
Albert var í byrjunarliði Fiorentina og skoraði þriðja mark liðsins á 69. mínútu, áður en hann var tekinn af velli stuttu síðar.
Með sigrinum er Fiorentina í sterkri stöðu fyrir seinni viðureignina sem fer fram í næstu viku.
Guðmundur Þórarinsson kom inn á sem varamaður í blálokin þegar lið hans Noah frá Armeníu vann 4:1 útisigur gegn Olimpija Ljubljana frá Slóveníu.
Mark Alberts í kvöld: