Í umfjöllun Tipsbladet í dag kemur fram að félagaskipti Galdurs Guðmundssonar til KR hafi ekki falið í sér neina fjárhæð til Horsens, þrátt fyrir að danska liðið hafi tilkynnt brottför hans sem sölu. Samningi hans var rift svo hann gæti gengið til liðs við KR á frjálsri sölu.
Í hlaðvarpsþættinum Transferguru, sem Tipsbladet gefur út, greindi blaðamaðurinn Farzam Abolhosseini frá því að Horsens hafi ekki fengið eina einustu krónu fyrir félagaskiptin. Hann sagði jafnframt að fleiri leikmenn hefðu yfirgefið félagið með sama hætti í sumar, þó opinberar tilkynningar frá Horsens hafi gefið annað í skyn.
„Horsens hefur ekki hagnast á þessum félagaskiptum. Samningarnir voru einfaldlega riftir og leikmennirnir fóru á frjálsri sölu til annarra félaga,“ sagði Abolhosseini og tók fram að hann hafi fengið þessar upplýsingar staðfestar.
Galdur, sem er 19 ára, gekk árið 2022 til liðs við danska stórliðið FC Kaupmannahöfn frá Breiðabliki í félagaskiptum sem metin voru á um 50 milljónir króna. Fyrr á þessu ári var hann keyptur til Horsens, áður en hann sneri heim og samdi við KR í byrjun þessa mánaðar.