Illarramendi hefur trú á Orra

Fyrrverandi fyrirliði Real Sociedad hefur mikla trú á Orra Steini.
Ljósmynd/Navarra

Asier Illarramendi, fyrrverandi fyrirliði Real Sociedad, hefur mikla trú á Orra Steini Óskarssyni. Í viðtali hjá Goazen Reala! hjá El Diario Vasco fór hann yfir leikmannahóp liðsins og ræddi hvaða leikmenn gætu skarað framúr á næstu mánuðum.

Illarramendi sagði að nokkrir leikmenn gætu látið til sín taka á tímabilinu, en bætti við að í hans augum væri Orri Steinn sá sem stæði upp úr.

„Það eru margir sem geta látið til sín taka, en ég myndi sérstaklega nefna Óskarsson,“ sagði hann í viðtalinu.

Orri Steinn lék 37 leiki fyrir Real Sociedad í öllum keppnum á síðasta tímabili og skoraði í þeim leikjum sjö mörk.

Fyrri frétt

Galdur fór frítt til KR

Næsta frétt

Aron Einar lagði upp gegn gamla félaginu – Myndband