Aron Einar lagði upp gegn gamla félaginu – Myndband

Aron Einar átti laglega stoðsendingu í sigri á sínu gamla liði í Katar.
Ljósmynd/qsl.qa

Aron Einar Gunnarsson átti stóran þátt í sigri Al-Gharafa í katörsku úrvalsdeildinni í gær. Liðið heimsótti Al-Arabi, þar sem Aron Einar lék árum saman, og fagnaði 2:1 sigri.

Heimamenn í Al-Arabi komust yfir strax á 12. mínútu en á 26. mínútu fann Aron Einar spænska framherjann Joselu með laglegri sendingu, sem má sjá hér að neðan.

Seinni hálfleikurinn reyndist síðan Al-Gharafa mun betri og tryggði Yacine Brahimi liðinu sigurinn með marki snemma í seinni hálfleik. Aron Einar lék allan leikinn sem miðvörður og stýrði varnarleiknum af sinni alkunnu festu.

Með sigrinum er Al-Gharafa komið á topp deildarinnar með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Fyrri frétt

Illarramendi hefur trú á Orra

Næsta frétt

Lagði aft­ur upp mark