Willum verður frá næstu vikurnar

Willum Þór verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla.
Ljósmynd/Birmingham

Willum Þór Willumsson, miðjumaður Birmingham City, meiddist á kálfa á æfingu með enska liðinu í vikunni.

Samkvæmt fréttum Fótbolta.net kom í ljós við skoðun að hann er með rifu í kálfavöðva og verður frá í fjórar til sex vikur. Af þeim sökum verður hann ekki með íslenska landsliðinu þegar það mætir Úkraínu og Frakklandi í undankeppni HM í október.

Willum hefur byrjað tímabilið vel hjá Birmingham sem er með sjö stig eftir fjóra leiki og situr í 10. sæti B-deildarinnar. Birmingham mætir Stoke City á útivelli í dag.

Fyrri frétt

Fór í viðtal hjá einni vinsælustu fréttakonu Ítalíu

Næsta frétt

Venezia missti frá sér sigurinn eftir að Bjarki fór af velli