Venezia missti frá sér sigurinn eftir að Bjarki fór af velli

Venezia missti frá sér sigurinn eftir að Bjarki Steinn var tekinn af velli.
Ljósmynd/Venezia

Bjarki Steinn Bjarkason var í byrjunarliði Venezia þegar liðið gerði 2:2 jafntefli við Pescara á útivelli í ítölsku B-deildinni í dag.

Bjarki var tekinn af velli á 77. mínútu í stöðunni 2:0 fyrir Venezia en aðeins tveimur mínútum síðar minnkaði Pescara muninn og jafnaði síðan metin í uppbótartíma.

Venezia er með fimm stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar og stefnir á að komast aftur upp í ítölsku A-deildina eftir að fallið úr deildinni á síðustu leiktíð.

Óttar Magnús Karlsson lék fyrstu 72 mínúturnar fyrir Renate í 3:1 tapi gegn Brescia í ítölsku C-deildinni. Þá lék Kristófer Jónsson allan leikinn fyrir Triestina í 2:1-útisigri gegn Lumezzane í sömu deild. Renate er í 5. sæti á meðan Triestina er í botnsætinu þar sem sjö stig voru dregin af liðinu í upphafi leiktíðar.

Fyrri frétt

Willum verður frá næstu vikurnar

Næsta frétt

Inn­koma Ísaks skipti sköp­um