Fór í viðtal hjá einni vinsælustu fréttakonu Ítalíu

Albert fór nýverið í viðtal hjá einni vinsælustu fréttakonu Ítalíu.
Ljósmynd/Instagram@marialuisajacobelli_

Albert Guðmundsson, leikmaður Fiorentina, fór nýverið í viðtal hjá hinni vinsælu ítölsku íþróttafréttakonu Marialuisa Jacobelli á SportMediaset. Jacobelli er með 4,5 milljón fylgjendur á Instagram og er ein þekktasta sjónvarpskona á Ítalíu.

Viðtalið birtist fyrir leik Fiorentina gegn Napoli í kvöld en Albert verður ekki með þar sem hann glímir við meiðsli sem hann hlaut í landsleik gegn Aserbaídsjan á dögunum.

Albert sagði í viðtalinu að Napoli væri eitt sterkasta lið landsins og meðal helstu kandídata til að vinna titilinn. „Þeir urðu meistarar í fyrra og það gerir þá sjálfkrafa að keppinautum um titilinn. Liðið hefur líka styrkt sig vel í sumar.“

Albert hrósaði einnig Stefano Pioli, þjálfara Fiorentina, fyrir að hafa hækkað standardinn innan liðsins. „Allir hafa séð hvernig hann hefur lyft liðinu upp með sinni reynslu og karakter. Hann hefur komið með rétta hugarfarið og fyrir mig persónulega er það mikilvægt. Ég finn að hann treystir mér og nú er það undir mér komið að endurgjalda traustið.“

Albert viðurkenndi jafnframt að hann hafi þurft að takast á við erfið meiðsli á síðustu leiktíð. „Ég hugsaði með mér að þetta væri að byrja aftur, en þá verður maður einfaldlega að rísa upp og hugsa um að snúa sem fyrst aftur. Þetta voru ekki alvarleg meiðsli heldur tímabil sem ég þurfti að vinna mig í gegnum. Nú hugsa ég einungis um að komast sem fyrst aftur inn á völlinn,“ sagði Albert að lokum.

Viðtalið við Albert má sjá hérna.

Fyrri frétt

Aron kom við sögu í sigri

Næsta frétt

Willum verður frá næstu vikurnar