Willum orðinn heill heilsu

Willum Þór hef­ur jafnað sig af meiðslum.
Ljósmynd/Birmingham

Willum Þór Willumsson er mættur aftur til æfinga hjá Birmingham City eftir um þriggja mánaða fjarveru vegna meiðsla, en þetta kemur fram á vef BirminghamLive.

Willum sneri aftur til æfinga í síðasta mánuði en varð þá fyrir bakslagi sem tafði endurkomuna. Hann tók þó fullan þátt í æfingum liðsins í gær og er því orðinn gjaldgengur á ný. Ekki er þó búist við að hann hefji leik strax, enda hefur hann ekki komið við sögu síðan í lok ágúst.

Þjálfari Birmingham, Chris Davies, hefur lýst því yfir að Willum geti leyst ákveðin hlutverk framarlega á miðsvæðinu, þar sem liðið hefur glímt við óstöðugleika á tímabilinu.

Birmingham er í 11. sæti ensku B-deildarinnar með 28 stig eftir 20 umferðir og mun mæta Charlton á morgun. Alfons Sampsted leikur einnig með Birmingham.

Fyrri frétt

Mjällby með Ísak í sigtinu

Næsta frétt

Eggert gekkst und­ir aðgerð