Eggert gekkst und­ir aðgerð

Eggert Aron verður frá keppni næstu mánuðina.
Ljósmynd/Bergens Tidende

Eggert Aron Guðmundsson, leikmaður Brann í Noregi, verður frá keppni næstu mánuðina eftir að hafa gengist undir aðgerð á hné. Hann varð fyrir meiðslunum í Evrópudeildarleik gegn PAOK á dögunum.

Brann greinir frá því að aðgerðin hafi gengið vel og að Eggert geti hafið endurhæfingu á næstunni. Þrátt fyrir það er ljóst að hann verður frá keppni um hríð og missir meðal annars af næstu leikjum liðsins í Evrópudeildinni.

Brann á eftir leiki gegn Fenerbahce, Midtjylland og Sturm Graz í deildarkeppni Evrópudeildarinnar í vetur og er í góðri stöðu til að tryggja sér sæti í næsta hluta keppninnar, en Eggert verður ekki með í þeim leikjum.

Eggert er ekki eini leikmaðurinn hjá Brann sem glímir við meiðsli um þessar mundir, en Sævar Atli Magnússon hefur einnig verið frá vegna meiðsla. Brann hafnaði í 4. sæti norsku úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili.

Fyrri frétt

Willum orðinn heill heilsu

Næsta frétt

„Reyni alltaf að gera gæfumuninn“