Albert Guðmundsson skoraði sigurmark Fiorentina í 2:1-sigri gegn Dynamo Kíev í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í gærkvöld, en sagði eftir leikinn að liðið hefði ekki svigrúm til að dvelja lengi við úrslitin.
„Auðvitað er ég ánægður. Við höfðum beðið lengi eftir þessum sigri, en við getum ekki fagnað honum of lengi því við þurfum annan sigur strax á sunnudag,“ sagði Albert í viðtali eftir leikinn.
Albert kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik og tryggði Fiorentina sigurinn með marki sínu, en sagði markmið sitt ætíð vera að hafa áhrif á leikina þegar hann kæmi við sögu. „Þegar ég spila reyni ég alltaf að gera gæfumuninn. Það skiptir ekki máli hvort við erum undir, að gera jafntefli eða erum yfir, ég vil leggja mitt af mörkum í leikjunum,“ sagði hann.
Sjá einnig: Sigurmarkið hjá Alberti – Myndband
Næsti leikur Fiorentina er gegn Hellas Verona í ítölsku A-deildinni á sunnudag og um afar mikilvægan leik að ræða. Fiorentina situr sem stendur á botni deildarinnar en Hellas Verona er einu sæti ofar, með þremur stigum meira. „Nú snýst þetta um að jafna sig og vera klárir fyrir sunnudaginn, því sá leikur skiptir miklu máli,“ sagði Albert að lokum.