Elías Már á leið heim úr atvinnumennsku

Elías Már er á leið til Íslandsmeistara Víkings eftir ellefu ár í atvinnumennsku erlendis.
Ljósmynd/y.meizhou.cn

Elías Már Ómarsson er á leið til Íslandsmeistara Víkings eftir ellefu ár í atvinnumennsku erlendis, samkvæmt heimildum hlaðvarpsins Dr. Football. Framherjinn mun þar með snúa heim á ný, en hefur hafnað því að ganga til liðs við uppeldisfélag sitt, Keflavík.

Elías Már, sem er þrítugur, er enn samningsbundinn kínverska liðinu Meizhou Hakka sem féll nýlega úr kínversku úrvalsdeildinni. Hann skoraði fjögur mörk fyrir liðið í 14 deildarleikjum á þessu ári.

Elías Már hefur áður leikið í Hollandi, Frakklandi, Svíþjóð og Noregi og skoraði fyrr á árinu sitt hundraðasta deildarmark. Hann hefur alls skorað 131 mark í 399 leikjum á ferlinum.

Elías á að baki níu A-landsleiki fyrir Ísland. Víkingur er ríkjandi Íslandsmeistari og hyggst verja titil sinn á næsta tímabili, auk þess sem liðið stefnir á gott gengi í Evrópukeppni.

Fyrri frétt

„Reyni alltaf að gera gæfumuninn“

Næsta frétt

Emelía valin efnilegust hjá HB Køge