Emelía valin efnilegust hjá HB Køge

Emelía var á dögunum útnefnd efnilegasti leikmaður HB Køge.
Ljósmynd/HB Køge

Emelía Óskarsdóttir, leikmaður HB Køge, var á dögunum útnefnd efnilegasti leikmaður liðsins á þessu ári. Tilkynnti liðið þetta í aðdraganda bikarleiks gegn AGF í dönsku bikarkeppninni.

Emelía, sem er 19 ára, hefur komið sterk til baka eftir að hafa slitið krossband í ágúst í fyrra og verið frá keppni í rúmt ár. Hún sneri aftur í haust og hefur síðan skorað níu mörk í tólf leikjum, þar á meðal þrennu gegn FC Kaupmannahöfn í bikarkeppninni.

HB Køge trónir á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar með þriggja stiga forystu og er jafnframt komið í undanúrslit bikarsins.

Fyrri frétt

Elías Már á leið heim úr atvinnumennsku

Næsta frétt

Ásdís skoraði glæsilegt sigurmark – Myndband