Ásdís skoraði glæsilegt sigurmark – Myndband

Ásdís Karen skoraði glæsilegt sigurmark í Portúgal.
Ljósmynd/Braga

Ásdís Karen Halldórsdóttir varð hetja Braga þegar liðið sló Sporting út í 16-liða úrslitum portúgalska bikarsins með 1:0-sigri í dag.

Sigurmarkið kom á 87. mínútu þegar Ásdís lék vel á varnarmann Sporting, skapaði sér skotfæri í teignum og skaut boltanum í fjærstöngina og inn. Markið má sjá hér að neðan.

Ásdís var í byrjunarliði Braga, ásamt Guðrúnu Arnardóttur, og tryggði liðinu sæti í átta liða úrslitum keppninnar.

Fyrri frétt

Emelía valin efnilegust hjá HB Køge

Næsta frétt

Viktor Bjarki enn á marka­skón­um