Viktor Bjarki Daðason var á skotskónum enn á ný þegar FC Kaupmannahöfn tryggði sér sæti í undanúrslitum dönsku bikarkeppninnar með 2:0-sigri á Esbjerg í seinni leik liðanna á Parken í dag.
FC Kaupmannahöfn hafði einnig unnið fyrri leik liðanna og vann einvígið því samanlagt örugglega, 6:2. Viktor var í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar og skoraði seinna mark leiksins á 67. mínútu, þegar hann innsiglaði sigur heimamanna. Rúnar Alex Rúnarsson sat á varamannabekknum í leiknum.
Viktor Bjarki, sem er aðeins 17 ára, skoraði alls þrjú mörk í einvíginu við Esbjerg og er nú kominn með sex mörk í fjórtán leikjum fyrir aðalliðið. Mörk hans hafa öll komið í bikarkeppninni og Meistaradeildinni.
FC Kaupmannahöfn mætir Midtjylland í undanúrslitum, þar sem Elías Rafn Ólafsson er á meðal lykilmanna.