Brynjólfur Darri Willumsson skoraði laglegt mark þegar Groningen vann öruggan 3:0-heimasigur á Volendam í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Brynjólfur var í byrjunarliði Groningen og skoraði annað mark liðsins á 74. mínútu. Hann braust þá í gegn með góðu hlaupi, lék á varnarmann og skoraði af öryggi í nærhornið neðra megin. Markið má sjá hérna. Skömmu síðar var hann tekinn af velli, en heimamenn innsigluðu sigurinn með marki undir lok leiks.
Markið var það fyrsta hjá Brynjólfi síðan í lok ágúst, en hann hefur verið að jafna sig á meiðslum undanfarið. Hann fór frábærlega af stað á tímabilinu og skoraði fimm mörk í fyrstu fjórum umferðunum og er nú með sex mörk í tólf leikjum. Groningen er í 5. sæti deildarinnar með 26 stig eftir 16 umferðir.