Mjällby með Ísak í sigtinu

Sænska meistaraliðið Mjällby er sagt vera með Ísak Andra í sigtinu.
Ljósmynd/Norrköping

Sænska meistaraliðið Mjällby er sagt vera með Ísak Andra Sigurgeirsson í sigtinu, að því er fram kemur í frétt FotbollDirekt. Ísak Andri, sem er 22 ára, hefur leikið með Norrköping frá árinu 2023 og er samningsbundinn liðinu út næsta keppnistímabil.

Samkvæmt heimildum miðilsins hefur Mjällby átt í samskiptum við umboðsmann leikmannsins, en ekki hefur verið leitað formlega til Norrköping að svo stöddu. Áhuginn tengist hugsanlegum breytingum á leikmannahópi meistaranna í vetur.

Útlit er fyrir að Ísak Andri færi sig um set í vetur, enda féll Norrköping nýverið úr sænsku úrvalsdeildinni og mun leika í sænsku B-deildinni á komandi tímabili. Ísak Andri hefur áður verið orðaður við Hammarby og þá hafa lið í Belgíu og í þýsku B-deildinni einnig sýnt honum áhuga.

Á nýafstöðnu tímabili skoraði Ísak Andri þrjú mörk og lagði upp sjö til viðbótar í 30 deildarleikjum fyrir Norrköping.

Fyrri frétt

Íslend­inga­liðið aft­ur í úr­vals­deild­ina

Næsta frétt

Willum orðinn heill heilsu