Íslend­inga­liðið aft­ur í úr­vals­deild­ina

Íslendingaliðið Álasund tryggði sér sæti í norsku úrvalsdeildinni.
Ljósmynd/Álasund

Íslendingaliðið Álasund tryggði sér í gærkvöld sæti í norsku úrvalsdeildinni eftir að hafa haft betur gegn Bryne í úrslitum umspilsins, samanlagt 4:1. Með sigrinum snýr liðið aftur í úrvalsdeildina, þar sem það lék síðast árið 2023.

Álasund hafði lagt grunninn í fyrri leiknum með öruggum 4:0-sigri og fór því með mikla forystu inn í seinni leikinn. Bryne skoraði eina mark leiksins í gærkvöld, en það dugði ekki til að snúa einvíginu við.

Davíð Snær Jóhannesson lék seinni hálfleikinn með Álasundi í gærkvöld en Ólafur Guðmundsson var á varamannabekknum allan leikinn. Álasund endaði í 4. sæti í norsku B-deildinni og tryggði sér þar með sæti í norsku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð.

Fyrri frétt

Dagur Dan til Montréal

Næsta frétt

Mjällby með Ísak í sigtinu