Dagur Dan Þórhallsson hefur skipt um lið innan MLS-deildarinnar en kanadíska liðið CF Montréal hefur tryggt sér krafta bakvarðarins frá Orlando City.
Samkvæmt upplýsingum frá MLS-deildinni fær Orlando City 500 þúsund Bandaríkjadali fyrir Dag og getur kaupverðið hækkað um allt að 125 þúsund dali til viðbótar. Dagur hefur gert samning við Montréal sem gildir út tímabilið 2027–28, með möguleika á framlengingu um eitt ár.
Dagur gekk til liðs við Orlando City í ársbyrjun 2023 frá Breiðabliki og lék alls 116 leiki í öllum keppnum fyrir liðið. Hann skoraði níu mörk og lagði upp ellefu til viðbótar á þeim tíma.
Dagur hefur áður leikið með Fylki, Keflavík og Haukum hér á landi auk þess að spila í Noregi. Hann á sjö A-landsleiki að baki fyrir íslenska landsliðið.
Montréal hafnaði í neðri hluta Austurdeildar MLS á síðasta tímabili og stefnir á að styrkja liðið fyrir komandi tímabil.