Viktor Bjarki var í leikmannahópi FC Kaupmannahafnar

Viktor Bjarki var í leikmannahópi hjá aðalliði FC Kaupmannahafnar.
Viktor Bjarki. Ljósmynd/FCK

Viktor Bjarki Daðason var í leikmannahópi hjá aðalliði FC Kaupmannahafnar í 3:3-jafntefli liðsins við Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Hann sat þó allan tímann á varamannabekknum.

Viktor, sem er aðeins 17 ára, hefur vakið mikla athygli á tímabilinu með unglingaliði FC Kaupmannahafnar þar sem hann hefur skorað fimm mörk í fjórum leikjum í U19-deildinni í Danmörku.

Framherjinn gekk til liðs við FC Kaupmannahöfn frá Fram á síðasta ári. Viktor á að baki 23 landsleiki og fimm mörk fyrir yngri landslið Íslands og er talinn einn efnilegasti framherji landsins um þessar mundir.

Fyrri frétt

Vigdís skoraði í þriðja leiknum í röð – Myndband

Næsta frétt

Hörður Björgvin til Levadiakos