Hörður Björgvin Magnússon hefur samið við gríska úrvalsdeildarliðið Levadiakos. Samningurinn gildir út yfirstandandi leiktíð.
Hörður, sem er 32 ára, varð samningslaus eftir að samningur hans við Panathinaikos rann út í sumar. Hann hafði nýlega átt í viðræðum við Anorthosis Famagusta á Kýpur, en fjárhagsvandræði félagsins gerðu það að verkum að ekkert varð af samningi þar. Í kjölfarið hóf hann viðræður við Levadiakos og gekk formlega til liðs við félagið nú í dag.
Ferill hans spannar nú átta félög, en hann hélt snemma til Juventus á Ítalíu árið 2011. Síðan hefur hann leikið með Cesena, Spezia, Bristol City, CSKA Moskvu og Panathinaikos áður en hann samdi nú við Levadiakos.
Levadiakos, sem er staðsett í borginni Livadeia í Mið-Grikklandi, leikur sitt annað tímabil í röð í úrvalsdeildinni og hefur byrjað þetta tímabil vel. Liðið situr í 6. sæti deildarinnar með sjö stig eftir fjórar umferðir.