Vigdís Lilja Kristjánsdóttir hefur verið áberandi í sóknarleik RSC Anderlecht undanfarnar vikur. Hún skoraði í þriðja leiknum í röð þegar liðið vann 6:0-sigur á Genk í belgísku úrvalsdeildinni í gær.
Hún innsiglaði sigurinn með sjötta marki liðsins á 82. mínútu og er þar með komin með fjögur mörk í síðustu þremur leikjum. Tvö þeirra komu í 9:0-sigri á Aris Saloniki í Evrópubikarnum í síðustu viku og annað í fyrri leiknum gegn sama liði sem endaði 5:0.
Vigdís Lilja hefur þannig reynst afar öflug fyrir Anderlecht á fyrstu vikum tímabilsins en liðið er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir, með markatöluna 8:0.