Logi lagði upp sigurmarkið – Myndband

Logi átti stóran þátt í dramatísku sigurmarki Samsunspor í Tyrklandi.
Ljósmynd/Samsunspor

Logi Tómasson átti stóran þátt í dramatísku sigurmarki Samsunspor í uppbótartíma þegar liðið lagði Fatih Karagümrük að velli, 3:2, í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag.

Logi lék allan leikinn í stöðu vinstri bakvarðar og átti mjög góðan leik. Hann átti góða sendingu frá vinstri inn í teig í uppbótartímanum sem lagði grunninn að sigurmarkinu og tryggði liðinu þrjú dýrmæt stig. Stoðsendingu hans má sjá hér að neðan.

Samsunspor hefur byrjað leiktíðina vel og situr í 4. sæti deildarinnar með 11 stig eftir sex umferðir.

Andri Fannar Baldursson lék síðan allan leikinn fyrir Kasımpaşa sem gerði 1:1 jafntefli við Fenerbahçe á heimavelli. Kasımpaşa er í 12. sæti með fimm sitg.

Fyrri frétt

Arna komin á blað í Noregi – Þrír leikmenn lögðu upp

Næsta frétt

Vigdís skoraði í þriðja leiknum í röð – Myndband