Arna komin á blað í Noregi – Þrír leikmenn lögðu upp

Arna skoraði sitt fyrsta mark fyrir Vålerenga í Noregi.
Ljósmynd/Vålerenga

Arna Eiríksdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Vålerenga í 4:0-sigri liðsins á Kolbotn í norsku úrvalsdeildinni í dag. Hún lék allan leikinn í vörninni og skoraði með skalla á 54. mínútu. Sædís Rún Heiðarsdóttir var einnig í byrjunarliði Vålerenga og lék í klukkutíma.

Vålerenga er í 2. sæti með 49 stig, sjö stigum á eftir toppliði Brann sem vann 5:1 á útivelli gegn Lilleström. Þar kom Diljá Ýr Zomers inn á í upphafi seinni hálfleiks og lagði upp þriðja mark Brann.

Amanda Andradóttir átti stoðsendingu þegar Twente vann NAC Breda, 6:0, í Hollandi og er liðið með fullt hús stiga eftir tvær umferðir.

Hildur Antonsdóttir lagði upp eina mark Madrid CFF í 1:1-jafntefli gegn Atlético í spænsku úrvalsdeildinni. Hildur lagði einnig upp í síðasta leik liðsins en Madrid CFF er í 8. sæti eftir fjórar umferðir.

Ásdís Karen Halldórsdóttir og Guðrún Arnardóttir byrjuðu hjá Braga sem gerði 1:1 jafntefli í Portúgal. Hafrún Rakel Halldórsdóttir spilaði síðasta hálftímann með Brøndby í 3:2-sigri og Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir var í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar sem vann 3:0 í dönsku B-deildinni.

Hlín Eiríksdóttir var í byrjunarliði Leicester í 1:0-tapi gegn Chelsea í Englandi og Ísabella Sara Tryggvadóttir kom inn á hjá Rosengård í 3:0-tapi gegn Häcken í Svíþjóð, þar sem Fanney Inga Birkisdóttir var á bekknum.

Þá lék Sandra María Jessen síðustu mínúturnar hjá Köln sem tapaði 2:1 fyrir Wolfsburg í þýsku úrvalsdeilidnni.

Fyrri frétt

Nóel Atli skoraði í sigri Álaborgar – Myndband

Næsta frétt

Logi lagði upp sigurmarkið – Myndband