Nóel Atli Arnórsson, 18 ára varnarmaður, skoraði sitt fyrsta mark í meistaraflokki þegar hann kom inn af bekknum í 3:0-sigri Álaborgar á B93 í dönsku B-deildinni í dag.
Nóel Atli kom inn á í hálfleik og var fljótur að láta til sín taka. Á 53. mínútu leiksins var hann á réttum stað í teignum og innsiglaði sigur Álaborgar með þriðja og síðasta markinu. Hér að neðan má sjá mark Nóels í leiknum.
Álaborg er í 7. sæti deildarinnar með 11 stig eftir tíu umferðir.
Í sömu deild kom Ísak Snær Þorvaldsson inn af bekknum í liði Lyngby sem vann öruggan 4:0-sigur á HB Köge. Lyngby trónir á toppi deildarinnar með 18 stig.
Í dönsku úrvalsdeildinni voru Kristall Máni Ingason og Rúnar Þór Sigurgeirsson báðir í byrjunarliði Sønderjyske sem gerði 2:2-jafntefli við Vejle. Daníel Leó Grétarsson var hins vegar ekki með að þessu sinni. Sønderjyske er í 6. sæti með 11 stig eftir níu leiki.