Utrecht og Preston berjast um Andra

Utrecht og Preston hafa bæði áhuga á að fá Andra Lucas í sínar raðir.
Ljósmynd/Gent

Andri Lucas Guðjohnsen gæti verið á förum frá belgíska liðinu KAA Gent áður en fé­laga­skipta­glugg­inn lok­ar, en bæði hollenska úrvalsdeildarliðið FC Utrecht og enska B-deildarliðið Preston North End hafa áhuga á að fá hann í sínar raðir.

Belgíski blaðamaðurinn Sacha Tavolieri greinir frá því að Gent hafi gefið grænt ljós fyrir mögulegum félagaskiptum og að bæði Utrecht og Preston eigi í viðræðum við Andra.

Utrecht er talið standa sterkar að vígi í samkeppninni, þar sem liðið heldur í vonina um sæti í Evrópudeildinni eftir að hafa komist í umspil um sæti í keppninni í kvöld. Kolbeinn Birgir Finnsson leikur með liðinu.

Andri Lucas gekk til liðs við Gent frá Lyngby í Danmörku á síðasta ári fyrir tæpar þrjár milljónir evra. Hann hefur spilað 48 leiki fyrir belgíska liðið, skorað fimm mörk og lagt upp tvö.

Fyrri frétt

Brann komst áfram og Elías hélt hreinu

Næsta frétt

Sláin inn hjá Guðmundi – Myndband