Guðmundur Þórarinsson kom inn á sem varamaður í framlengingu þegar Noah mætti Lincoln Red Imps í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
Eftir markalausan leik og framlengingu réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni þar sem Guðmundur skoraði öruggt og glæsilegt mark, stöngin inn.
Það dugði þó ekki til, því Noah tapaði 6:5 og heldur áfram í umspil Sambandsdeildarinnar, þar sem liðið mætir Olimpija Lublijana frá Slóveníu í úrslitaeinvígi um sæti í keppninni.
Markið má sjá hér að neðan.