Aron Einar Gunnarsson skoraði laglegt mark í fyrstu umferðinni í úrvalsdeildinni í Katar þegar lið hans Al-Gharafa lagði Umm Salal að velli, 4:2, í dag.
Markið hjá Aroni kom á 88. mínútu og tryggði liðinu 3:2 forystu en hann fór sjálfur upp völlinn og átti gott skot fyrir utan teig sem markvörður Umm Salal réð ekki við, sem má sjá hér að neðan.
Aron var tekinn af velli skömmu síðar, í uppbótartímanum, en samherji hans innsiglaði sigurinn með fjórða markinu rétt fyrir leikslok. Aron var í leikslok valinn maður leiksins af sjónvarpsstöðinni Alkass.
Al-Gharafa endaði í þriðja sæti í úrvalsdeildinni í Katar á síðustu leiktíð en Aron gekk í raðir liðsins fyrir ári síðan.