Kristall Máni Ingason skoraði fyrra mark Sønderjyske í 3:2 tapi liðsins gegn Fredericia í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Kristall byrjaði leikinn á varamannabekknum en hann kom inn á sem varamaður á 58. mínútu og skoraði aðeins fimm mínútum síðar. Daníel Leó Grétarsson lék allan tímann í vörninni hjá Sønderjyske en Daníel Freyr Kristjánsson var ekki í leikmannahópi Fredericia.
Sønderjyske lék einum manni færri frá 33. mínútu og tókst að jafna metin í 2:2 með marki á 79. mínútu en það dugði ekki til því Fredericia skoraði sigurmark í uppbótartíma. Sønderjyske er aðeins með fjögur stig eftir fyrstu fimm leiki tímabilsins.
Daniel Ingi Jóhannesson sat allan tímann á varamannabekknum hjá Nordsjælland í 3:1 tapi gegn FC Kaupmannahöfn. Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leikmannahópi FC Kaupmannahöfn.
Í dönsku B-deildinni var Ólafur Dan Hjaltason í byrjunarliði Aarhus Fremad í 2:0 tapi gegn Hvidovre. Ólafur lék fyrstu 73 mínúturnar í leiknum.
Nóel Atli Arnórsson kom inn á sem varamaður á 68. mínútu í 2:0 tapi AaB gegn AC Horens.
Þá kom Breki Baldursson inn á 78. mínútu hjá Esbjerg sem vann stórsigur gegn B 93, 5:1.