Lecce, lið Þóris Jóhanns Helgasonar, og Genoa, lið Mikaels Egils Ellertssonar, komust bæði áfram í 32-liða úrslit í ítölsku bikarkeppninnni í kvöld.
Þórir Jóhann var í byrjunarliði Lecce og lék allan leikinn þegar liðið tók á móti Juve Stabia. Leiknum lauk með 2:0 sigri Lecce.
Mikael Egill var hins vegar ónotaður varamaður hjá Genoa sem vann 3:0 sigur gegn LR Vicenza.
Lecce og Genoa leika bæði í ítölsku A-deildinni sem fer aftur af stað um þarnæstu helgi.
Í úrvalsdeildinni í Króatíu kom Danijel Dejan Djuric inn á sem varamaður á 85. mínútu þegar lið hans NK Istra 1961 gerði 1:1 jafntefli við Vukovar 91. Logi Hrafn Róbertsson var ónotaður varamaður hjá NK Istra 1961.
Helgi Fróði Ingason var í byrjunarliði Helmond Sport og lék fyrri hálfleikinn í 1:1 jafntefli gegn RKC Waalijk í hollensku B-deildinni.
Þá var Davíð Kristján Ólafsson að venju í byrjunarliði Cracovia þegar liðið lagði Widzew Lodz að velli, 1:0, í pólsku úrvalsdeildinni. Davíð Kristján og samherjar hans í Cracovia byrja tímabilið vel en liðið er í öðru sæti eftir fimm umferðir.